156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

leigubifreiðaakstur.

388. mál
[14:34]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og fyrir það að gefa okkur tækifæri til að ræða málið. Ég held að við séum öll sammála um það að staðan á leigubílamarkaði er ekki góð. Þar er alvarlegt ástand sem þarf að taka á. Það eru nokkur atriði í mínum huga sem hafa orsakað þetta ástand og misjafnar leiðir sem þarf að fara að því. Hér talar ráðherrann skýrt um það að hann hafi ákveðið að leggja fram þetta frumvarp út af þessu ástandi. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvað annað hefur hann gert, með yfirstjórnarheimildir sínar, til þess að laga það ástand sem ríkir á leigubílamarkaði í dag? Hvað hefur hann gert annað, með aðrar heimildir sem hann hefur og önnur úrræði sem hann hefur, en að leggja fram frumvarp?