156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

leigubifreiðaakstur.

388. mál
[14:35]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hver er ástæða þess að ástandið á leigubílamarkaði í dag er eins og það er? Það er vegna þess að Alþingi Íslendinga samþykkti lög árið 2022 sem leiddu til þessa ástands. Þetta er sígilt dæmi um það hver áhrif löggjafar geta orðið í samfélaginu. Við munum vonandi öll hvernig ástandið var fyrir löggjöfina. Þá var ástandið mjög gott. Vissulega hefði mátt veita fleiri leyfi. En ástandið er vegna löggjafarinnar. Ef það á að taka á þessu ástandi þarf að breyta lögunum.

Ég get alveg upplýst hv. þingmann um það að ég hef ekki beitt reglugerðarheimildum mínum eða tekið stjórnvaldsákvarðanir með öðrum hætti til að bæta þetta ástand vegna þess að eina leiðin til að bæta ástandið er að tryggja öryggi farþega. Það verður fyrst og fremst gert með lögum — með því að tryggja eftirlit með upphafi ferðar og lokum hennar, eftirlit meðan hún stendur yfir og að skráð verði rafrænt hver kostnaður við ferðina var. Það er grundvallaratriði. Það erum við að gera með þessum lögum. (Forseti hringir.) Við höfum farið blandaða leið, bæði með stöðvarskyldu og ekki með stöðvarskyldu. Nú eru allir að fara í stöðvarskyldu. Hin leiðin er að hafa enga stöðvarskyldu og það yrði algjört kaos.