leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Ég er mjög hissa á því að heyra í svari hæstv. ráðherra að hann hafi ekki notað þær ríkulegu yfirstjórnarheimildir sem hann hefur í nýsamþykktum lögum um leigubifreiðaakstur til að takast á við einmitt þau vandamál sem hann lýsir hér, t.d. til að ákveða hvað felist í viðeigandi starfshæfni — það er eitt af því sem reglugerðarheimildin heimilar. Og enn fremur: Hvaða brot hafi áhrif á orðspor ökumanna, sem telst gott eða ekki; framkvæmd leyfisveitingar, t.d. um það hvaða gögn og vottorð skuli fylgja umsókn; nánari skyldur rekstrarleyfishafa skv. 8. gr. laganna; eftirlit með gjaldmælum; og að verðskrá skuli vera aðgengileg viðskiptavinum. Er það ekki eitt af meginmálunum sem menn eru að tala um hérna? Hann hefur til þessa reglugerðarheimild. Er það svar ráðherrans að hann hafi ekki skoðað neinar aðrar leiðir til að takast á við það alvarlega ástand sem er á leigubílamarkaði núna?