156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

leigubifreiðaakstur.

388. mál
[14:38]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er endurskoðunarheimild í lögunum. Frá 1. janúar í ár hefur verið heimilt að endurskoða lögin. Ég fór strax fram á það við starfshópinn að hann myndi skila frumvarpi til mín um það sem væri mikilvægast. Hvað er mikilvægast hér? Það er öryggi farþega. Þessu frumvarpi er ætlað að auka öryggi farþega. Ég sagði strax að ég vildi leggja fram frumvarp á vorþingi, sem allra fyrst. Nú er það komið og ég hef mælt fyrir því. Ég vonast til þess að hv. þingmaður stuðli að því að þetta frumvarp fái skjóta og örugga afgreiðslu. Þannig getum við afgreitt þetta mál. Við munum halda áfram. Starfshópurinn mun halda áfram vinnu sinni og taka á öðrum þáttum sem skipta máli til að ná utan um þetta.

Heimildir mínar í reglugerð eru mjög takmarkaðar af því að lögin eru eins og þau eru. Þessi blandaða leið sem farin var með stöðvarskyldu og að hluta ekki með stöðvarskyldu var algjört klúður að mínu mati og við erum með þetta ástand núna. (Forseti hringir.) Hin leiðin er að hafa stöðvarskyldu eða enga stöðvarskyldu. Engin stöðvarskylda er kaos og villta vestrið. Nú ætlum við að fara í stöðvarskyldu. Það stenst allar kröfur ESA. Það er réttmætt að fara strax í þetta vegna þess að öryggi farþega skiptir öllu máli.