156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

leigubifreiðaakstur.

388. mál
[14:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgönguráðherra fyrir framsöguna. Hann nefnist auðvitað hæstv. innviðaráðherra nú. Maður er enn að ruglast á þessu. Ég vil nefna tvennt. Af því að tíminn er stuttur vil ég byrja á því að fá það skýrt frá hæstv. ráðherra: Er tillagan sem hér var mælt fyrir komin frá starfshópnum sem vinnur á grundvelli endurskoðunarákvæðis frá 1. janúar 2025 eða er þetta tillaga sem kemur frá hæstv. ráðherra utan þeirrar vinnu?