leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Ég vil ítreka seinni spurningu mína um það hvort ráðherra hyggist ekki reyna að beita þeim heimildum sem hann hefur til að tryggja að þeir hlutir sem við höfum heyrt að hafi farið úrskeiðis verði í lagi. Sumir þessara hluta varða stofnanir ráðuneytisins og ráðherra getur þá væntanlega hlutast til um að farið verði að lögum.
Síðan langar mig að spyrja ráðherra að einu af því að hann þekkir málið vel. Þegar fyrsta frumvarpið var lagt fram var heimild en ekki skylda til að vera með stöðvarskyldu. Það voru ákveðnar heimildir þar inni. Er frumvarpið sem hæstv. ráðherra leggur nú fram verulega frábrugðið því frumvarpi sem lagt var fram fyrst? Því að frumvarpið breyttist eftir því sem vinnu þingsins vatt fram. Það var lagt fram fjórum sinnum, ef ég man rétt.