156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

leigubifreiðaakstur.

388. mál
[14:46]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég er núna að láta skoða heimildir mínar til að setja reglugerðir. Meira að segja erum við búin að óska eftir áliti fræðimanns um það hvort við getum gert ákveðnar breytingar í reglugerð út frá lögmætisreglunni. Þá vil ég einfaldlega óska eftir því að fá að gera nákvæmlega það sama og gert er á Norðurlöndum, í Noregi og Danmörku, í námsgreinum þar sem próf í Danmörku er á dönsku án túlks, og í Noregi er próf á norsku án túlks. Það er gert með reglugerðarheimild.

Hins vegar skilst mér að lögmætisreglan íslenska sé miklu strangari. Þetta sé ekki hægt að gera með reglugerðarheimild heldur verði þetta að vera í lögum. Ég er að láta skoða þetta sérstaklega. Ég mun að sjálfsögðu skoða aðrar heimildir mínar til að geta lagað það sem fer úrskeiðis.

Við höfum verið með blandaða leið. Í núgildandi lögum er blönduð leið. Við munum fara þá leið að það verði stöðvarskylda á öllum. Þessi blandaða leið gengur ekki upp. (Forseti hringir.) Það er rétt sem hv. þingmaður segir að hún varðar eingöngu hluta þess hóps sem er nú í leigubifreiðaakstri.