leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Aðeins vegna þessa máls sem er gríðarlega mikilvægt í samfélagi okkar og varðar fyrst og fremst öryggi farþega. Þegar maður rifjar upp málið kemur í ljós að þegar lögunum var breytt voru margir úr núverandi stjórnarliði fylgjandi því að stigið væri skref í frelsisátt.
Mér hefur þó sýnst á umræðunni í kjölfar ræðu hæstv. ráðherra að ekki hafi verið kallað eftir öllum upplýsingum um það sem hann hefur heimild til að gera. Því langar mig að spyrja hvort það sé ekki dálítið bratt að fara af stað með nýtt frumvarp um breytingar í stað þess að kanna áður til hlítar og láta greina hvað fór úrskeiðis í framkvæmd Samgöngustofu og láta athuga hvernig hægt er að fyrirbyggja að það gerist aftur.
Viðfangsefnið er ekki endilega stöðvarskylda heldur það hvernig framkvæmdin fór svo herfilega úrskeiðis sem raun ber vitni um.