156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

leigubifreiðaakstur.

388. mál
[14:50]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Hann telur sem sagt ekki að það sé brýnt fyrir framhald málsins að fá greiningu á því hvað fór úrskeiðis í framkvæmdinni. Það hafa komið fram, eins og hér hefur verið sagt og við þekkjum öll, gríðarlegar gagnrýnisraddir um það hvernig staðið var að prófum og þar fram eftir götunum. Verðum við ekki að fá það allt upp á borðið áður en lengra er haldið? Áður — ekki samhliða því að ákveðið er að breyta lögunum? Ég tel að það væru réttu vinnubrögðin.

Það kemur mér satt að segja á óvart að því sé vísað á bug og að það sé ekki forgangsatriði. Ég held að við myndum spara mikinn tíma með því. Þannig myndum við átta okkur á því hvað það var sem varð þess valdandi að ástandið er eins og það er. Það er framkvæmdin. Ég held að við séum öll sammála um það að þar fór eitthvað verulega úrskeiðis. Þörf er á greiningu á því. Hver ber ábyrgð á því að framkvæmdin fór eins mikið úrskeiðis og raun ber vitni?