156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

leigubifreiðaakstur.

388. mál
[14:52]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hvað fór úrskeiðis? Við vitum hvað fór úrskeiðis. Eftirlitið var ekki sem skyldi. Það er auðvelt að svindla á farþegum. Það eru ekki upplýsingar um verð. Staðsetning meðan á ferð stendur, upphaf ferðar og lok hennar eru ekki skráð. Það er fyrsta skrefið.

Svindl á prófum verður að sjálfsögðu skoðað í framhaldinu. Það tekur lengri tíma. Þá er spurningin þessi: Einstaklingar sem hafa sannarlega svindlað á prófi, á að svipta þá leyfi eða láta þá taka prófið upp á nýtt ef tekst að sanna það? Einnig þarf að rannsaka sérstaklega sögur sem maður hefur heyrt um það að einstaklingar hafi tekið próf gegnum síma með aðstoð túlks. Ekki gafst tími til þeirrar vinnu á þessum fjórum eða fimm mánuðum þegar frumvarpið var í undirbúningi. Þeirri vinnu verður haldið áfram.

Einnig verður að skoða eftirlitsheimildir Samgöngustofu með stöðvum og leigubifreiðaakstri. (Forseti hringir.) Það er brýnt að strangur og góður rammi sé utan um þessa starfsemi, sem er mikilvæg.

Vissulega er þýðingarmikið að það sé frelsi í þessu. Við erum ekki að koma í veg fyrir það að erlendir aðilar geti verið hér — Uber, Hopp og Bolt og það allt — og að þetta verði í gegnum app líka. Við erum ekki að koma í veg fyrir þá framleiðniaukningu sem verður í gegnum þessi stafrænu forrit.