Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að ekki verði innritað í nám í fjallaleiðsögn við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu í haust. Skýringin er sú að námið sé kostnaðarsamt og erfitt í rekstri í fámennum skóla. Um er að ræða sérhæft og vandað nám sem hefur þróast síðustu ár. Með sívaxandi ferðaþjónustu og í ljósi hins hörmulega slyss sem varð á Breiðamerkurjökli síðasta sumar vekur furðu að eina faglega jöklanám landsins standi nú frammi fyrir óvissu. Hagsmunir ferðaþjónustunnar eru gríðarlegir og ríkið hefur einmitt lagt aukna áherslu á öryggi ferðamanna eftir þetta hörmulega slys. Það gerir mikilvægi námsins enn skýrara. Námið er á fjórða hæfniþrepi og lendir því milli skips og bryggju líkt og gerst hefur með Hallormsstaðaskóla.
Í máli hæstv. menntamálaráðherra í fréttum RÚV í fyrradag kom fram að hann styðji námið heils hugar, sem ég tek undir. Hins vegar vekur það fleiri spurningar að aðstandendur námsins hafi sótt um að stofna fjallaskóla Íslands sem einkaskóla, ekki síst í ljósi nýlegrar reynslu af einkarekstri Kvikmyndaskólans sem nú er rekinn af Rafmennt. Það er mikilvægt að hafa í huga að málið er þverfaglegt og varðar hæstv. dómsmálaráðherra sem fer með öryggismál í víðum skilningi, auk hæstv. ferðamálaráðherra sem fer með málefni ferðaþjónustunnar, auk fjármála- og efnahagsráðherra vitanlega. Þetta þverfaglega mál kallar því á nánara samstarf þessara ráðuneyta um málefni fjallaleiðsagnar og öryggismál almennt í ferðaþjónustu um allt land. Ég hvet því hlutaðeigandi ráðherra til að vinna saman að því að tryggja fjármögnun og framtíð þessa mikilvæga náms þannig að hægt verði að starfrækja það fram á næsta haust í þágu aukins öryggis ferðamanna og aukinnar fagmennsku í íslenskri ferðaþjónustu.