Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þegar ég var 14 ára var ég staddur í Bratislava að keppa á Evrópumeistaramóti unglinga í borðtennis. Eitt kvöldið fórum við liðsfélagarnir saman í leigubíl og sú ferð situr dálítið í mér. Ástæðan er sú að bílstjórinn harðneitaði að taka við greiðslu frá Íslendingum þar sem við vorum meðal þeirra þjóða sem fyrstar viðurkenndu sjálfstæði Slóvakíu, þá 12 árum áður. Þetta var í fyrsta skipti sem ég áttaði mig almennilega á því að það sem við gerum hér í þessum sal hefur ekki bara áhrif á Íslendinga heldur alls konar fólk langt út fyrir landsteinana. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur viðurkenndi sjálfstæði Palestínu í kjölfar þingsályktunar sem var samþykkt hér inni árið 2011. Það var bæði hugrakkt og rétt hjá þingmönnum þess tíma sem sumir sitja hér enn. Daglega les maður fréttir af hryllingi á Gaza. Fyrir þremur dögum voru það árásir á tjaldbúðir flóttafólks, í fyrradag var enn einn skólinn sprengdur og í gær var opinberað að Sameinuðu þjóðirnar telji að 14.000 börn muni deyja berist hjálpargögn ekki innan tveggja daga. 14.000 börn.
Virðulegur forseti. Ísland á allt sitt undir því að alþjóðalög séu virt. Hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra eiga hrós skilið fyrir skýra afstöðu og virka samvinnu við líkt þenkjandi ríki síðustu daga. Það er þó löngu orðið ljóst að hvöss orð duga ekki ein og sér. Orðin „þetta getur ekki haldið svona áfram“ verða nokkuð bitlaus ef ástandið heldur alltaf áfram. Mig langar að hvetja hæstv. ráðherra til dáða að ná saman við önnur ríki um viðskiptaþvinganir gegn Ísrael. Tími aðgerða er runninn upp. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)