156. löggjafarþing — 47. fundur,  21. maí 2025.

Störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Ragnhildur Jónsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það er mér sannur heiður að stíga hér í pontu í fyrsta sinn og ræða málefni sem standa mér nærri, heilsueflingu og forvarnir. Skynsemin segir okkur að það sé betra að fyrirbyggja eldsvoða en að slökkva elda með tilheyrandi tjóni en þegar kemur að heilbrigðiskerfinu hafa stjórnvöld þó ítrekað kosið að fjárfesta í slökkvistarfi fremur en í brunavörnum. Þetta er skiljanlegt að vissu leyti því að þegar mannslífi í neyð er bjargað er árangurinn bæði áþreifanlegur og mælanlegur. En enginn hefur tölur yfir þau líf sem var bjargað vegna þess að einstaklingar fengu snemmtæka íhlutun, fræðslu, stuðning og tækin til að hlúa að eigin heilsu og velferð. Engar tölur eru til um hjartaáfallið sem aldrei varð. Þá tekur árangurinn af forvörnum oft mun lengri tíma en eitt kjörtímabil að koma í ljós, jafnvel áratugi. Allt að helmingur heilsufarsútkomna ræðst af fyrirbyggjanlegum þáttum sem unnt er að hafa áhrif á með markvissum aðgerðum. Samt fer aðeins lítið brot af heilbrigðisútgjöldum í að styðja fólk við að breyta lífsháttum til lengri tíma. Aðeins um 2% af útgjöldum til heilbrigðismála hér á landi fer í forvarnir en til samanburðar mælir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin með að hlutfallið sé 5% hið minnsta.

Til þess að verja heilbrigðiskerfið fyrir áskorunum framtíðarinnar, aukningu langvinnra sjúkdóma samhliða öldrun þjóðarinnar og sívaxandi kostnaði þarf að hugsa til langs tíma og forgangsraða velferð einstaklinga og andlegri og líkamlegri heilsu þeirra og færast frá viðbrögðum til forvarna. Þannig má best tryggja virka þátttöku sem flestra í samfélaginu sem lengst. En það er ekki nóg að fjárfesta meira í forvörnum heldur þarf að gera það skynsamlega og setja mælikvarða á árangurinn, beita gagnreyndum, vel ígrunduðum og þjóðhagslega arðbærum aðgerðum sem skila raunverulegum árangri fyrir einstaklinga og fyrir samfélagið í heild áður en í óefni er komið.

Sameinumst þvert á flokkslínur um að byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í. Það er ekki bara fjárhagslega hagkvæmt, það bætir lífsgæði þjóðarinnar og mun koma í veg fyrir fjölda ótímabærra dauðsfalla. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)


Efnisorð er vísa í ræðuna