Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að bregðast stuttlega við orðum sem hv. þm. Karl Gauti Hjaltason lét falla í þingsal á mánudaginn og tek það skýrt fram að hv. þingmaður hefur verið látinn vita, í vitna viðurvist, af ræðu minni. Hv. þingmaður gagnrýndi boð um stöðubreytingu lögreglustjórans á Suðurnesjum og vísaði í því samhengi til þess að senda hafi átt hann í einhvern Lokinhamradal og það með þeim tón að slíkt væri nú ekki til mikillar virðingar. Nú vil ég árétta eitt. Lokinhamradalur er fallegur, friðsæll og einstakur dalur á Vestfjörðum og á allt annað skilið en að vera táknmynd fyrir einhverja ímyndaða endastöð embættismanna sem gefið er sterkt til kynna að sé með einhverjum hætti ómerkileg. Í þessi tilviki var embættismanninum auk þess boðið starf á Austurlandi. Við skulum bara segja það hreint út: Austurland er ekki afskekkt horn heldur mikilvægt svæði. Meðal annars eru þar hafnir og flugvellir þar sem mikilvægt landamæraeftirlit fer fram. Þar er öflugt samfélag sem skilar miklum arði inn í þjóðarbúið og ekki síst fjölbreyttu löggæsluhlutverki. Það kom dálítið á óvart að heyra þessa nálgun frá hv. þingmanni sem sjálfur kemur af landsbyggðinni og þekkir löggæslu og lögreglumál afar vel. Hann veit betur. Svo að ég bjóði nú ekki bara í orðastríð þá er hv. þingmaður alltaf velkominn austur. Ég skal glöð kynna honum staðhætti og marga fallega dali á Austurlandi, hafi hann áhuga á því.
Stjórnarandstaðan, sem lýtur forystu Miðflokksins um þessar mundir, hefur það hlutverk að veita stjórnvöldum aðhald og sýna við það keppnisskap. Kappið má þó ekki bera fegurðina ofurliði. Það gerðist hjá hv. þingmanni á mánudag. Það sem í huga hans hljómaði fyrir fram eins og vel útfærð sókn reyndist lítið annað en vandræðalegt sjálfsmark.