Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég ætla hér að gera að umræðuefni hafrannsóknir á Íslandi. Við erum með Hafrannsóknastofnun Íslands sem við setjum og berum mikið traust til en Hafrannsóknastofnun Íslands hefur ekki staðið undir væntingum. Í fyrsta lagi ætluðu þeir að byggja upp þorskstofninn fyrir 40 árum síðan þegar kvótakerfið var tekið upp en þeim hefur aldrei tekist það og í 40 ár höfum við aldrei verið að veiða nema helming af því sem var lofað að við fengjum að veiða ef við færum að tillögum þeirra 1984 þegar kvótakerfið var sett á. Þá sagði forstjóri Hafrannsóknastofnunar, sem hét Jakob Jakobsson: Ef þið farið eftir okkar tillögum næstu tvö, þrjú árin verði þið farnir að veiða 450.000–500.000 tonn af þorski á ári. Þetta hefur aldrei orðið og við höfum aldrei verið að veiða nema í besta falli fyrsta árið, 1984, þá veiddum við 267.000 tonn. Við þurfum, Alþingi Íslendinga þarf að taka út og gera rækilega úttekt á vinnubrögðum Hafrannsóknastofnunar í gegnum tíðina og fara yfir þessi mál með það í huga að reyna að fá betra og meira út úr fiskstofnum sem eru umhverfis Ísland.