Störf þingsins.
Frú forseti. Þau ánægjulegu tíðindi urðu í morgun að Seðlabanki Íslands lækkaði enn á ný stýrivexti sína. Þeir hafa nú alls lækkað þrívegis á þessu ári, síðan ný ríkisstjórn tók við völdum, og eru nú 7,5%. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar sem birt var í morgun er farið yfir að verðbólga hafi hjaðnað og verðbólguvæntingar lækkað síðustu misseri og í ritinu Peningamál, sem var líka birt í morgun, er spá um að verðbólgan fari að hjaðna í 2,5% markmið Seðlabanka Íslands eftir þetta ár. Þótt enn þurfi að sýna aga og stöðugleika í efnahagsmálum þjóðarinnar þá hljóta það að teljast gríðarlega jákvæð tíðindi að vextir séu að lækka með þessum hætti. Síðustu birtu tölur Hagstofu Íslands sýndu að íslensk heimili hafi greitt 121 milljarð kr. í vaxtagjöld á árinu 2024. Þau höfðu vaxið um 51 milljarð frá árinu 2021 og 11 milljarða bara á síðasta ári.
Hvert prósentustig í lækkun vaxta skilar tugum milljarða í auknar ráðstöfunartekjur fyrir heimilin í landinu og því er til mikils unnið að sýna ábyrgð í efnahagsmálum. Það er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að gera. Hún er að gera það með aukinni tekjuöflun til að standa undir nauðsynlegri og uppsafnaðri fjárfestingarþörf. Hún er að gera það með vel heppnaðri eignasölu upp á 90 milljarða kr. sem notaðir verða til að lækka skuldir og hún er að gera það með hagræðingu án þess að hún bitni á þjónustu. Allt þetta á að skila því að ríkissjóður verði hallalaus árið 2027. Það er því ekki ofsögum sagt að við erum á réttri leið enda verkstjórn í Stjórnarráðinu sem vill gera gagn, ekki kyrrstöðustjórn líkt og sat að völdum á síðasta kjörtímabili. Tökum örugg skref áfram.