156. löggjafarþing — 47. fundur,  21. maí 2025.

Störf þingsins.

[15:38]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Fyrr í mánuðinum sat ég málefnalegan og öflugan fund með fulltrúum eldri borgara á Akureyri. Þar átti ég gott samtal við rúmlega 100 manns sem komnir eru á efri ár um það sem helst brennur á þeim. Það sem stóð upp úr samtalinu voru þó nokkur atriði en kannski helst málefni heyrnartækja og kostnaðurinn í tengslum við kaup heyrnartækja. Fjölmargir lýstu þeirri raun að það sé einfaldlega ekki á allra færi að fjármagna þessi hjálpartæki, tæki sem þó eru grundvöllur þess að geta tekið virkan þátt í samfélaginu okkar. Ég held að við getum öll verið sammála um þá staðreynd að heyrnartæki eru ekki munaðarvara. Þau eru forsenda fyrir því að fólk geti átt samskipti við fjölskylduna sína, tekið þátt í félagslífi og átt innihaldsríkt líf á sínum efri árum. En þegar fólk hefur ekki efni á þessum tækjum þá hefur það eðlilega áhrif á líðan, sjálfsmynd og ekki síst lífsgæði fólksins. Það má því segja að þetta sé jafnréttismál, að þetta sé þátttökumál í samfélaginu og þetta sé samfélagsmál.

En, virðulegi forseti, við þurfum ekkert endilega að finna upp hjólið. Við getum horft til annarra landa og þeirrar reynslu þar sem þjónustan hefur verið endurskipulögð með því að nýta bæði opinbera aðila og einkaaðila. Þar hafa opinberir fjármunir verið nýttir með markvissari hætti með því að beina þeim í það sem skiptir máli, þ.e. tækin sjálf, og þannig skapað rými fyrir aukna niðurgreiðslu án þess að kostnaður í kerfinu hækki. Ég held að það sé afar mikilvægt að við hlustum á þessi sjónarmið eldra fólks og reynum að byggja okkar aðgerðir og áætlanir í tengslum við það því að þessi umræða hérna um heyrnartæki er ein birtingarmyndin. Við getum vissulega aukið aðgengi og tækifæri eldra fólks til þess að kaupa heyrnartæki, (Forseti hringir.) því að góð heyrn er ekki lúxus heldur forsenda fyrir þátttöku í lífinu, en það er líka mikilvægt fyrir okkur að hafa það í huga að þetta takmarkast ekki eingöngu við eldra fólk.


Efnisorð er vísa í ræðuna