156. löggjafarþing — 47. fundur,  21. maí 2025.

viðvera ráðherra í þingsal.

[15:43]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Mig langaði að spyrja hæstv. forseta: Þegar óskað er eftir lengd þingfundar, hvort það sé þá ekki eðlilegt að segja hversu lengi, í ljósi þess að ég hef hingað til verið græn á takkanum af því að mér finnst sjálfsagt að lengja þingfund. En mig langar ekki að ræða t.d. aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum í nótt. Þannig að á meðan þetta er svona opið þá mun ég segja nei, af því að ég ætla ekki að samþykkja eitthvað í blindni.