156. löggjafarþing — 47. fundur,  21. maí 2025.

viðvera ráðherra í þingsal.

[15:47]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er rétt að vekja athygli á því að hæstv. ráðherra tók hér þátt í umræðunni í gær um þetta leigubílafrumvarp og hann gerir það enn, hann fylgist með þessu máli þótt hann sé ekki hér í salnum. Og það gera fleiri, þjóðin fylgist með þeim sýndarleik sem hér er í gangi. Ég vil bara brýna það fyrir hv. stjórnarandstöðu að hún greiði fyrir þingstörfum og sérstaklega í þessu máli. Eins og hv. þm. Kolbrún Baldursdóttir fór vel inn á þá snýst þetta um öryggi almennings og að setja á þetta sjónarspil í þessu máli finnst mér ekki vera í samræmi við þá virðingu sem við viljum hafa hér á störfum þingsins.