viðvera ráðherra í þingsal.
Frú forseti. Ég þakka fyrir það að staðgengill hæstv. innviðaráðherra verði hér við umræðuna á eftir. Það er auðvitað sá háttur sem eðlilegt er að sé á og ég veit að virðulegur forseti er mér sammála um þetta í ljósi þess að forseti hefur ávallt gengið til þess verks að kalla staðgengla á svæðið þegar ráðherrar málsins hafa þurft að bregða sér af bæ. Það er gott að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra verði hér við umræðuna á eftir í ljósi þess að hæstv. innviðaráðherra á ekki heimangengt. En nú hefur borist boð um fund í hv. velferðarnefnd klukkan fjögur vegna þess að það þurfi að líta til með nefndaráliti. Mig langar til að spyrja virðulegan forseta hvort það verði ekki örugglega gert fundarhlé á meðan sá fundur á sér stað.