156. löggjafarþing — 47. fundur,  21. maí 2025.

viðvera ráðherra í þingsal.

[15:49]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Mig langar að þakka hæstv. forseta fyrir að bregðast hér við og sjá til þess að staðgengill hæstv. innviðaráðherra sé hér á svæðinu. Það er með algjörum ólíkindum að við höfum þurft að fara hér í fundarstjórn í gær og kvarta yfir því að ráðherra væri ekki á svæðinu. Við erum nýbúin að taka þessa rimmu og það á að vera alveg ljóst að það sé ákveðin skylda á ráðherrum hér að fylgja eftir sínum málum. Og ef ráðherrar þurfa að fara erlendis þá eru þeir með staðgengla. Þannig að ég þakka fyrir það að hæstv. ráðherra sé hér í dag.

En ef Flokkur fólksins vill senda út einhverjar pillur um að stjórnarandstaðan sé í málþófi í 1. umræðu þegar það er bara mjög skýrt afmarkaður tími, þá gætu þessir ágætu þingmenn kannski bara mætt í vinnuna, tekið þátt í umræðunni og fært rök fyrir því hvernig þetta frumvarp sem hér liggur fyrir á að leysa úr þeim vanda sem hv. þingmaður fór hér yfir áðan, því að það er einmitt það sem við vorum að ræða í gær. Þeim spurningum hefur ekki verið svarað. Þannig að hæstv. ráðherra og hv. þingmenn sem styðja þetta frumvarp geta bara mætt í vinnuna og mætt og tekið þátt í umræðunni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)