156. löggjafarþing — 47. fundur,  21. maí 2025.

viðvera ráðherra í þingsal.

[15:51]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að mér þykir þetta ansi döpur umræða sem hér fer fram og þá sérstaklega síðustu orð hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um að fólk sé ekki að mæta hér til vinnu, þegar hér voru þingmenn stjórnarinnar og hæstv. ráðherra virkir þátttakendur í umræðunni í gær, sem vissulega dróst upp í næstum níu tíma, ef mér skjátlast ekki. En það sem mér þykir í rauninni dapurlegast við þessa umræðu er það, og ef ég vísa bara í orð hv. þm. Jens Garðars Helgasonar frá því í gær, að hér fer fram einhvers konar pólitískt „skuespil“, eins og hann orðaði það svo pent í ræðustól í gær, þar sem þingflokksformenn allra stjórnarandstöðuflokkanna voru upplýstir um það að ráðherra myndi fara af landi brott eftir umræðuna í gær. Það var óskað eftir því að taka þetta mál inn á mánudagsfund vegna þess að í 1. umræðu væri einmitt eini tímapunkturinn fyrir þingmenn til að eiga orðastað við ráðherra um málið. Það hefði þurft aukinn meiri hluta ef við hefðum tekið það inn á mánudaginn en það var ekki einn flokkur í stjórnarandstöðunni tilbúinn að samþykkja það og fá þá tvo daga með ráðherra og flýta fyrir málinu. Nei, hér átti að setja upp (Forseti hringir.) pólitískt leikrit, tala hér í níu tíma og kvarta yfir því að ráðherra væri farinn af landi, sem þau vissu þó fyrir fram. (Forseti hringir.) Þannig að hér, virðulegur forseti, fer fram pólitískt „skuespil“ sem við skulum setjast niður og hlusta á næstu mínúturnar þangað til fundi er frestað. En þetta er afar dapurlegt að mínu mati.