156. löggjafarþing — 47. fundur,  21. maí 2025.

viðvera ráðherra í þingsal.

[15:56]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Talandi um virðingu fyrir þingstörfunum; ég tók nú að mér í sjálfboðastarf hér í gærkvöld, smá nýliðafræðslu fyrir hv. þingflokksformann Samfylkingarinnar. Ég skal glöð gera það aftur og minna hér hv. þingmenn stjórnarinnar á það hvað við erum að gera hér á þessu þingi. Við erum ekki stimpilstofnun fyrir hæstv. ráðherra. Hér eigum við að taka virkan þátt í þingstörfum. Það voru nefnilega svo fáir hv. þingmenn stjórnarinnar viðstaddir í gær einmitt á þessum kvöldfundi þegar við vorum að ræða gríðarlega mikilvægt mál hér við 1. umræðu á þingi þannig að ég ætla bara að endurtaka það: Hér erum við að vinna gríðarlega mikilvæga vinnu, koma að athugasemdum og taka þátt í lýðræðislegri og opinni umræðu og það er ótrúlegt — það er ótrúlegt að hlusta hérna á hv. þingmenn stjórnarinnar gera lítið úr þeim störfum.