afmælisfagnaður í Smiðju.
Forseti vill geta þess að síðdegis í dag, klukkan 5, verður afmælisfagnaður í Smiðju og þess minnst að á þessu ári eru 150 ár frá því að skrifstofa Alþingis var stofnuð. Skrifstofan var stofnuð á 1. löggjafarþingi Íslendinga með yfirlýsingu Jóns Sigurðssonar, forseta neðri deildar, 2. júlí 1875. Þorsteinn Magnússon, fyrrverandi varaskrifstofustjóri Alþingis, mun flytja erindi í Kvos og segja frá rannsókn sinni á sögu skrifstofunnar og fjalla um stofnun hennar ásamt því að ræða um verkefni starfsfólks á þessum tíma. Að loknu erindinu verður opnuð sýning á 1. hæð í Smiðju á gögnum og munum sem tengjast þessu fyrsta starfsári skrifstofunnar. Af þeim sökum verður gert hlé á þingfundi frá kl. 17 til kl. 18.30 og eru þingmenn allir hvattir til að mæta til afmælisfagnaðarins í Smiðju.