endurkrafa vegna styrkja til Flokks fólksins.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir spurninguna. Það kom skýrt fram í máli mínu, og í þeim ytri matsgerðum sem fjármálaráðuneytið fékk í tengslum við þetta mál, að það snerist um hvort stjórnmálaflokkar mættu ætla af hegðun fjármálaráðuneytisins að þessi skilyrði um skráningu skiptu ekki máli. Spurningin var því aldrei um það hvort flokkarnir vissu af þessu skilyrði, sem ætla mátti að þeir gerðu, enda höfðu þeir tekið þátt í að semja lögin, heldur hvort þeir mættu ætla að það hefði afleiðingar fyrir rétt þeirra til styrkja. Þetta kom skýrt fram í máli mínu og þetta breytir því engu.