156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

endurkrafa vegna styrkja til Flokks fólksins.

[10:39]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir síðara svarið. Ég leyfi mér að minna hana á að enginn flokkur á Alþingi uppfyllti skilyrði laganna þegar greitt var samkvæmt þeim í fyrsta skipti. Enginn. Og það var allur gangur á hvernig þessi skráning var. Hefði ég verið í fjármálaráðuneytinu á þeim tíma, sem ég var ekki, hefði ég sett það verklag á sem nú gildir og tekur tillit til þess hvort öll skilyrði séu uppfyllt eða ekki. Það var ekki gert og það var alls ekki á minni vakt.