íslensk hrossarækt.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir áhugaverða fyrirspurn sem fól kannski í sér lýsingu hv. þingmanns á áhyggjum af þessu máli frekar en endilega fyrirspurn um stöðu mála, nema hvað ráðherra hefði í hyggju að gera. Það er ekki til staðar neitt regluverk í dag sem bannar útflutning eða veitir ráðherra heimild til að banna útflutning á hrossasæði að öðru leyti en því — og þetta er því ekki háð öðrum leyfum en því sem varðar innflutningslandið, þ.e. þetta er bara háð reglum þeirra landa sem slíkur útflutningur er hugsaður til, nema auðvitað að um sé að ræða einhverja sjúkdóma sem kæmu upp hér á landi. Þá er til heimild fyrir ráðherra að banna útflutning hrossasæðis. Ég verð bara að segja að ég hef ekki fengið inn á mitt borð beinar beiðnir, að ég kannist við, um að fara ofan í þessi mál. Þetta varðar auðvitað hagsmuni ákveðinna aðila en við erum líka að tala um frjáls viðskipti hér þannig að ég held að svarið mitt akkúrat núna sé fyrst og fremst á þann veg að það hefur komið fram beiðni frá hlutaðeigandi aðila um að eiga fund með ráðherra til að fara yfir þessi mál. Það verður að sjálfsögðu tekið vel í það. Það er staðan eins og hún er núna. Það er ekki heimild fyrir hendi að öðru leyti en því að ef upp kæmu einhverjir sjúkdómar gæti ráðherra gripið inn í.