156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

íslensk hrossarækt.

[10:44]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég skal vera beinskeyttari þannig að spurningarnar komi fyrr fram og séu auðskildari. Er hæstv. ráðherra til í að beita sér fyrir því að draga þessa umræðu upp á yfirborðið, kalla til hagsmunaaðila, Bændasamtökin, samtök hrossaræktenda, Landssamband hestamanna, jafnvel ferðaþjónustu, því að stór hluti af þessu er líka tengdur ferðaþjónustu, til greininga og ráðagerða um það hvort það sé sniðugt og æskilegt fyrir okkur sem þjóð að veita þennan nánast óheftan aðgang að genamengi íslenska hrossastofnsins? Telur ekki hæstv. ráðherra að íslenskir hrossabændur, sem hafa staðið vörð um þetta algerlega einstaka kyn, eigi það skilið að hér fari fram djúp og greinargóð umræða um það hvert við viljum fara með þetta þjóðardjásn okkar?