hækkun veiðigjalda.
Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir fyrirspurnina sem ég tel reyndar að hefði verið réttara að hv. þingmaður hefði beint til þeirra þingmanna og ráðherra eftir atvikum sem hann hefur þessi orð eftir. Ég hygg að þau séu mögulega höfð eftir í misáhugaverðri umræðu sem fór fram í síðustu viku um veiðigjöld og það er þá eitthvað nýtt ef verið er að taka hér setningar sem til falla og beina í fyrirspurn til ráðherra. Ég ætla bara að halda áfram að tala fyrir þeirri leiðréttingu sem ég hef lagt fram í frumvarpi og er samkvæmt stjórnarsáttmála. Þar hafa verið lögð fram skýr gögn af okkar hálfu um hvernig við erum að leiðrétta þannig að veiðigjöldin verði loksins innheimt í þeim anda sem til var ætlast þegar þau lög voru sett, þ.e. af raunverulegu virði aflans.
Hvað varðar eitthvað annað þá er það ekkert launungarmál að flokkurinn sem ég er fulltrúi fyrir, Viðreisn, hefði séð fyrir sér aðra leið til að finna þetta raunverulega markaðsverð og það er uppboðsleið. Það er leið sem ekki er verið að fara, m.a. af því að gegn þeirri leið hafa komið fram mjög sterkar mótbárur ýmissa aðila um að það þýddi uppstokkun á kerfinu. Því er ég reyndar ósammála en það er verið að hlusta á rök. Við erum að fara þá þessa leið, nota þá reikniformúlu veiðigjalda sem ýmsir í þessum sal, fulltrúar ýmissa flokka hér í þessum sal, samþykktu á sínum tíma en við erum að leiðrétta þannig að raunverulegt markaðsverð gildi. Þetta er það verkefni sem ég stóð frammi fyrir og er að sinna og hef lagt fyrir þingið og er nú í þinglegri meðferð.
Hvað varðar einhver orð sem féllu hér í þessari umræðu og hv. þingmaður vísar til — ég bara treysti mér ekki til að taka afstöðu til þeirra.