156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

hækkun veiðigjalda.

[10:49]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir hennar svör. En ég velti því samt fyrir mér hvort það væri ekki ráðlegt fyrir hæstv. ríkisstjórn og hv. stjórnarþingmenn að samræma aðeins mál þegar kemur að umræðu um risastórt háskattamál á eina atvinnugrein þar sem mörg samfélög og fyrirtæki eru að velta fyrir sér hver stefnan sé, ekki bara núna heldur líka til framtíðar. Hefði hæstv. ráðherra ekki þótt meiri bragur á því að hér töluðu hv. þingmenn einni röddu varðandi stefnu hæstv. ríkisstjórnar í staðinn fyrir að boða hér ýmsar útfærslur á framtíðarkerfi og hækkandi sköttum inn í framtíðina næstu ár?