156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

hækkun veiðigjalda.

[10:50]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Líkt og hv. þingmaður er ég í miklum og góðum samskiptum bæði við fulltrúa atvinnugreinarinnar og þá sem starfa í tengdum viðskiptum víðs vegar um landið. Ég velkist ekki í neinum vafa um það að skilningur þessara aðila á því sem hér er í gangi er mjög skýr. Það er þetta frumvarp sem nú er í þinglegri meðferð. Það leikur enginn vafi á því. Hafa menn mismunandi skoðanir á því hvort það hefði mátt ganga lengra eða skemur eða gera hlutina öðruvísi? Klárlega. Það liggur í hlutarins eðli, líkt og ég fór yfir áðan um stefnu míns flokks, Viðreisnar. Þetta er hins vegar málið sem verið er að vinna. Ég get að vissu leyti tekið undir það að sennilega væri það vinnunni hér í þinginu til framdráttar ef þingmenn í ræðum sínum um málið fjölluðu um efnisatriði málsins. En ég ætla nú að leyfa mér að halda því fram að þar hafi þingmenn stjórnarandstöðunnar frekar skautað út af beinu línunni en þingmenn stjórnarinnar.