markaðssetning á nikótínvörum.
Virðulegi forseti. Ég fjallaði í síðustu viku um markaðssetningu glaðlynda gæjans og félaga á nikótínpúðum en staðan er sú, samkvæmt rannsókn norrænu velferðarnefndarinnar, að 30% af ungmennum hér á landi nota púðana og það er hæsta hlutfall á Norðurlöndunum. Sífellt fleiri börn upplifa fráhvörf eftir meðgöngu móður og við erum að sjá börn leita á bráðamóttöku vegna neyslu púðanna. Við sjáum sérverslanir með nikótínvörur spretta upp eins og gorkúlur í ólíkum hverfum borgarinnar. Þær eru í raun og veru að taka upp plássin sem við höfðum áður fyrir vídeóleigur nema í staðinn fyrir að selja bland í poka þá eru þær að selja nikótín til barna og ungmenna. Þær eru að selja efni sem er skilgreint sem eitt það mest ávanabindandi í heimi. Þær eru að selja efni sem hefur neikvæð áhrif á hjarta og æðakerfi. Þær eru að selja efni sem hefur neikvæð áhrif, skaðleg áhrif, á heilaþroska barna.
Kæri þingheimur. Þetta er einfaldlega ekki í lagi. Þessi skaðleg vara er markaðssett sem einhvers konar Extratyggjó, af fígúru sem er blanda af Mikka mús og íþróttaálfinum. Einmitt þess vegna höfðar hún til breiðari hóps, höfðar til afreksíþróttafólks, ólíkt því sem t.d. sígarettur gerðu á sínum tíma. Það er hæpið að slík villandi markaðssetning sé lögleg en í 11. gr. laga um nikótínvörur og rafrettur segir að hvers konar auglýsingar á nikótínvörum eða rafrettum eða áfyllingum séu bannaðar. Lögin virðast hins vegar ekki ná yfir slíkar fígúrur sem nýttar eru til að gera neysluna töff.
Fyrri heilbrigðisráðherra Framsóknar steig ýmis framfaraskref. (Forseti hringir.) Nikótínvörur voru felldar undir gildissvið laga um rafrettur og áhersla var lögð á forvarnir og það var lagður skattur á sömuleiðis. (Forseti hringir.) Ég sakna hins vegar frumvarps sem var á þingmálaskrá sem átti að taka skrefið lengra til að girða fyrir þessa villandi markaðssetningu og ég spyr hæstv. ráðherra: Hvar er sú vinna stödd? Hvenær kemur slíkt frumvarp inn í þingið?