markaðssetning á nikótínvörum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir fyrirspurnina og ég deili svo sannarlega áhyggjum af þeim vörum sem hún talar um, af nýjum nikótínvörum. Það er jú þannig að framleiðendur og þeir sem markaðssetja slíkar vörur eru alltaf skrefi á undan löggjafanum. Fyrir nokkrum árum voru það veip-vörurnar, rafretturnar, og það tókst að minnka notkun á þeim. Þá hafa púðar komið til og það er hárrétt að nikótín er alveg sérstaklega ávanabindandi efni og margir sem ánetjast því. Vissulega voru kostir við þessar vörur, þær gátu hjálpað fólki, fullorðnu fólki, til að hætta að nota tóbak en þær eru komnar miklu lengra en það og markaðssetning snýr oft á tíðum sérstaklega að börnum og ungmennum. Ég var t.d. á ráðherrafundi nýlega hjá Evrópusambandinu þar sem einn ráðherrann kom með fulla tösku af slíkum vörum sem eru bara í miklu fallegri umbúðum og höfða til barna. Það eru því allir að velta þessu fyrir sér.
Þingmaðurinn spurði um frumvarp og það mun koma fram á haustþingi. Þar er verið að sameina lög sem annars vegar lúta að tóbaki og hins vegar að öðrum nikótínvörum og auðvitað með það markmið í huga að vernda börn og ungmenni. Þar verður auðvitað að huga að þeim leiðum sem færar eru og m.a. að merkingum þessara vara og markaðssetningu.