156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

markaðssetning á nikótínvörum.

[10:57]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og það gleður mig að von sé á frumvarpinu í haust. Ég veit að fjölskyldur bíða eftir því að girt sé fyrir þessa villandi markaðssetningu. Ég get tekið undir með hæstv. ráðherra að auðvitað varð ákveðin breyting varðandi þá sem reyktu fyrir en við erum að horfa á þessa nýliðun. Við erum að horfa á þessa beinu markaðssetningu til barna sem þekkja ekki hversu ávanabindandi þetta er og hversu skaðleg áhrifin eru til lengri tíma. Forvarnir eru hér líka lykilmál.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða tímalínur, hvaða aðgerðir sér ráðherra, ef einhverjar, fyrir sér á forvarnahliðinni og hvernig mun það birtast í fjárlögum í haust?