markaðssetning á nikótínvörum.
Frú forseti. Aftur þakka ég hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir spurningu og athugasemd. Það eru ekki bara nýjar nikótínvörur sem ógna lýðheilsu barna og ungmenna, þær eru mjög margar aðrar. Við erum að tala hér um markaðssetningu á óhollustu. Það er líka óholl fæða, það er ofbeldi, það er skjátími og skjánotkun og lengi mætti telja. Þannig að ég hef sett af stað hóp sérfræðinga í lýðheilsu sem á að kortleggja þessar nýju áskoranir og jafnframt skoða til hvaða aðgerða er hægt að grípa og það verður grunnurinn að þeim aðgerðum sem farið verður í. En eins og allir vita er lýðheilsa mál allra ráðuneyta, allra stofnana, ekki bara heilbrigðisráðuneytis, þannig að þetta verður skoðað heildstætt. Og eins og ég segi þá koma auðvitað þær aðgerðir sem snúa að þessum vörum fram í frumvarpi.