vaxtaákvarðanir Seðlabankans.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir hans síðari spurningu. Ég skil nú að vísu ekki alveg hvað hann er að kvarta yfir viðbrögðum af því að það er þrátt fyrir allt þannig að fjármálaáætlunin sem liggur nú fyrir þinginu lýsir mjög mikilli stefnubreytingu varðandi það að ná tökum á rekstri hins opinbera, leita leiða til hagræðingar og ná jafnvægi í rekstri ríkissjóðs 2027, sem er fyrr en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Það er hins vegar rétt hjá honum að þetta er eitthvað sem ég og þessi ríkisstjórn tökum gríðarlega alvarlega og þetta brýnir okkur í því að við þurfum að sýna mjög mikið aðhald í umsvifum hins opinbera á komandi misserum.