156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.

[11:05]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Á undanförnum vikum hefur farið fram lífleg umræða um íslenskan sjávarútveg og mikilvægi hans fyrir byggðir landsins. Umræðan hefur verið tekin út frá ýmsum sjónarhornum, bæði hér á þessum vettvangi, í fjölmiðlum og víða í samfélaginu okkar. Í allri þessari umfjöllun hefur svo sannarlega verið dregið fram að sjávarútvegur skiptir marga landsmenn máli. Þrátt fyrir að fleiri styrkum stoðum hafi verið skotið undir atvinnulíf þjóðarinnar og Íslendingar geri nú margt til viðbótar við það að selja fisk yfir hafið eru áhrif sjávarútvegsins á lífið í landinu mikil, Verðmætin sem sjávarútvegsfyrirtæki af öllum stærðum skapa fyrir þjóðarbúið og byggðirnar hringinn í kringum landið eru ómetanleg. Það dylst engum. Sem íbúi í Fjarðabyggð er ég auðvitað sérstaklega meðvituð um þau jákvæðu áhrif sem starfsemi þróttmikilla sjávarútvegsfyrirtækja hefur á samfélagið.

Mitt í allri þessari umræðu sem hefur átt sér stað um sjávarútveginn síðustu vikurnar hefur komið fram ákall frá aðilum í sjávarútvegi um að stjórnvöld beiti sér fyrir því að vinnsluskylda verði sett á afla sem fiskiskip koma með að landi. Röksemdir fyrir þessu hafa verið á þá leið að með upptöku vinnsluskyldu væri hægt að hámarka gæði íslenskra sjávarafurða og verðmæti aflans fyrir samfélagið. Einnig hefur það ákall verið sett fram í samhengi við þá umræðu sem farið hefur af stað um að útflutningur á óunnum fiski muni aukast vegna fyrirhugaðrar leiðréttingar á veiðigjöldum. Einn framkvæmdastjóri sem ræddi við Morgunblaðið nýlega sagðist telja að íslenskt samfélag hefði orðið af yfir 50 milljarða kr. verðmætum á síðasta áratug með því að flytja út nokkur hundruð þúsund tonn af óunnum fiski. Sami framkvæmdastjóri sagði við Fiskifréttir að það væri einkennilegt að pólitíkin hefði ekki gripið inn í þessa þróun því það væri, með leyfi forseta, „galið að horfa á eftir tugum þúsunda tonna fara óunnin frá landinu inn á fiskvinnslur sem keppa við okkur á meginlandi Evrópu“, án þess að það væru reistar hindranir eða settar einhverjar álögur á það. Annar framkvæmdastjóri sjálfstæðrar fiskvinnslu talaði um það í samtali við Fiskifréttir að ef þau u.þ.b. 50.000 tonn sem árlega væru flutt út til erlendra vinnsla væru ekki flutt út heldur þess í stað unnin hér á landi gæti það skilað á bilinu 10–30 milljarða kr. aukningu á útflutningsverðmætum sjávarútvegs á ári hverju.

Virðulegi forseti. Þetta eru mjög stórar tölur og því er vert að staldra við. Í umræðunni hefur verið bent á að sjálfstæðar fiskvinnslur hafi lengi búið við hráefnisskort og óheilbrigða samkeppni við fyrirtæki sem stunda samþætta útgerð og vinnslu. Sumar fiskvinnslur, jafnvel í sjávarplássum sem hafa misst frá sér kvótann, hafa lagt upp laupana vegna skorts á hráefni. Á sama tíma er verið að skapa atvinnu í fiskvinnslum í Evrópu með íslensku hráefni.

Í þessari umræðu allri hafa verið færð rök fyrir því að störf í fiskvinnslu hringinn í kringum landið séu færri en þau gætu verið vegna þess að fiskur sé fluttur óunninn úr landi. Einnig hefur verið bent á að þessi útflutningur á óunnum fiski bitni á ímynd íslenskra sjávarafurða. Með útflutningnum missum við nefnilega stjórnina á því hvernig fiskurinn er verkaður og markaðssettur til neytenda og það getur spillt fyrir því markaðsstarfi sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki stunda.

Ég hef átt samtöl við aðila í sjávarútvegi sem segja mér að innan greinarinnar sé það smám saman að verða ráðandi viðhorf að við verðum að gera eitthvað til að hemja útflutning á óunnum fiski sem stuðli ekki að þjóðarhag. Talað hefur verið um að við ættum að byrja á því að tryggja innlenda vinnslu á okkar verðmætustu tegundum, þorskinum og ýsunni, og svo smám saman koma fleiri tegundum undir þessa stefnu.

Telur hæstv. atvinnuvegaráðherra koma til greina að setja á innlenda vinnsluskyldu í einhverju formi á íslenskan sjávarafla? Er eitthvað sérstakt sem þarf að hafa í huga í þeim efnum? Jafnframt vil ég spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra: Hafa farið fram einhverjar greiningar á því hvernig það gæti komið út fyrir íslenskt samfélag, sjávarútveg og byggðirnar í kringum landið ef óheimilt yrði að selja óunninn fisk úr landi?