156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.

[11:11]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eydísi Ásbjörnsdóttur kærlega fyrir að efna til þessarar sérstöku umræðu sem snýr að grundvallarspurningum um verðmætasköpun og sjálfbærni í sjávarútvegi. Síðastliðinn áratug hefur útflutningur á ferskum óunnum fiski verið í kringum 50.000 tonn á ári. Ástæður þess að aflinn er fluttur út óunninn eru margvíslegar, þær tengjast bæði framboðs- og eftirspurnarkröftum. Fiskveiðar og eftirspurn á lykilmörkuðum eru auðvitað mismunandi eftir árstíðum. Yfir sumarið fara starfsmenn í fiskvinnslum í sumarfrí og þá minnkar vinnslugeta tímabundið og eins geta komið aflaskot þar sem veiddur afli er einfaldlega meiri en vinnslur ráða við. Stærstu aðilarnir okkar í útflutningi á óunnum afla eru ekki einungis smærri fyrirtæki heldur einnig stærstu útgerðarfélög landsins eins og Samherji og Síldarvinnslan. Það gefur til kynna að þau séu að nýta sér þennan möguleika til að jafna út sveiflur í rekstri.

En það er rétt sem hv. þingmaður kemur inn á að það búa gríðarleg verðmæti í fullvinnslu á fiski hér á landi og miklir möguleikar til verðmætasköpunar sem og þessir möguleikar sem glatast þegar fiskurinn er sendur út óunninn og áhyggjuefni ef það eru vísbendingar um að það sé í auknum mæli. Við þekkjum það auðvitað að hér hefur myndast gríðarleg þekking í þróun tæknifyrirtækja í sjávarútvegi sem eru að þjónusta veiðarnar. Þetta er auðvitað gríðarleg verðmætasköpun, eins og ég kom inn á. Það eru mikil störf sem felast í þessu. Það er aukin fjárfesting í tækni og búnaði til fiskvinnslu og öll þessi umsvif fela í sér auknar skatttekjur til sveitarfélaga og ríkis. Við vitum af því að þetta leiðir til samkeppni á milli innlendrar fiskvinnslu, sem er að keppa um fiskinn á fiskmörkuðum okkar, og þetta auðveldar okkur að halda utan um ímyndar- og gæðamál á íslensku sjávarfangi. Og líkt og hv. þingmaður kom inn á þá eru vísbendingar um að íslenskur fiskur fari í veiðar erlendis og blandist þar öðrum afla sem fær þá á sig íslenskan stimpil. Það er áhyggjuefni og minnir á mikilvægi þess að við klárum þá vinnu sem er í gangi og hefur verið í gangi hjá Fiskistofu við að tryggja rekjanleika fisksins í gegnum alla virðiskeðjuna með traustum gögnum.

En svo ég vísi í spurningar hv. þingmanns um vinnsluskyldu þá er ekki í íslenskum lögum kveðið á um innlenda vinnsluskyldu á íslenskum sjávarafla. Það eru reglur um vinnsluskyldu í sérstökum sérreglum sem varða byggðakvóta en að öðru leyti er ekki kveðið á um slíka skyldu í íslenskum lögum og reglugerðum. Ef til skoðunar kæmi að setja slíka vinnsluskyldu á allan afla sem landað er hér á landi þá þyrfti að greina sérstaklega hvort það fæli í sér viðskiptahindrun samkvæmt EES-samningnum þar sem það kynni að hindra frjálst flæði vöru. Síðan er auðvitað lykilatriði að það fari fram þessi greining sem hv. þingmaður nefnir á áhrifum annars vegar þróunar í átt til aukins útflutnings á óunnum afla á rekstrarumhverfi fyrirtækja og jafnvel byggða sem og áhrifum slíkrar vinnsluskyldu ef af yrði.

Í lögum um stjórn fiskveiða er ákvæði sem heimilar ráðherra að ákveða að afli af ákveðnum fisktegundum sem fluttur er óunninn á erlenda markaði skuli reiknaður með álagi. Þessu ákvæði hefur ekki verið beitt frá árinu 2013. Hæstiréttur hefur fjallað um beitingu ákvæðisins og staðfest að það brjóti ekki gegn ákvæðum stjórnarskrár eða EES-samningsins, en það væri auðvitað æskilegt að greina nánar áhrif af beitingu þessa álagsákvæðis ef til þess kæmi, að teknu tilliti til samningsins. Undanfarin ár hafa verið unnar nokkrar skýrslur og greiningar um þetta efni, m.a. skýrsla starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra frá árinu 2008, Útflutningur á óunnum fiski, og skýrsla Háskólans á Akureyri frá árinu 2020 um útflutning á óunnum fiski í gámum. Þessar greiningar fjölluðu reyndar ekki um málið frá jafn víðu sjónarhorni og kallað er eftir hér í spurningum hv. þingmanns. Það er líka ljóst að síðasta úttekt er orðin fimm ára gömul og þegar litið er til þróunar síðustu ára þá er að mínu mati tímabært að taka stöðuna að nýju og skoða hvort ný gögn og upplýsingar breyti fyrra stöðumati. Einnig er mikilvægt að fara í þessa greiningarvinnu sem hér hefur verið nefnd, þ.e. að skoða málið frá fleiri sjónarhornum varðandi áhrif á rekstur fyrirtækja og byggðafestu. Þannig að það er full ástæða til að fara ofan í þetta mál og ég mun halda þar áfram.