156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.

[11:16]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að fagna því sérstaklega að hv. þingmenn ríkisstjórnarinnar hafi loksins áhuga á verðmætasköpun. Ég ætla að fá að fagna því og hrósa hv. þingmanni fyrir að koma upp og vera að velta fyrir sér stöðu íslensks sjávarútvegs. En þessi umræða um óunninn afla er ekki ný af nálinni og eins og kemur fram í máli hæstv. ráðherra þá hafa margar skýrslur verið gerðar um þetta mál. Ég tel að það sé ekki hægt að binda greinina þannig niður að takmarka með einhverjum hætti hennar möguleika til þess að nýta þær leiðir inn á markaðinn sem til eru og að setja á vinnsluskyldu væri ekki góð leið. Ég held að það sé meira fyrir okkur að reyna að búa til þá hvata til að vinna frekar fiskinn hér heima og við höfum haft þá hvata með samfelldri virðiskeðju og byggja upp öflugar vinnslur.

En af því að hæstv. ríkisstjórn vill fara hina norsku leið þá skulum við aðeins fara yfir útflutning 2023 á óunnum afla frá Íslandi og Noregi: 12% af þorski fóru óunnin út frá Íslandi 2023. 60% af þorski frá Noregi, 60%. 27% af ýsu frá Íslandi, 96% af ýsunni fóru óunnin út frá Noregi. Ég held að þetta kjarni málið. Þetta er hin norska leið sem er verið að boða og síðan á að bregðast við með því að setja á vinnsluskyldu svo að fyrirtækin geti ekki brugðist við stórauknum álögum.