156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.

[11:18]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég fagna þessari umræðu að sjálfsögðu. Auðvitað er mikilvægt að við sköpum atvinnu hér á Íslandi, þróum sjávarútveg sem hefur verið undanfarin ár í mikilli og örri framþróun, vélvæðingu og nýsköpun. Við erum fremst í flokki meðal þjóða einmitt í þessu þannig að þessi umræða um vinnsluskyldu er svolítið einkennileg. Þarna takast greinilega á sjónarmið í ríkisstjórninni hjá Samfylkingunni og Viðreisn. Samfylkingin talar fyrir sósíalisma og vill slökkva á flökunarvélunum þannig að hægt sé að vinna aflann með fleiri höndum hér á Íslandi og Viðreisn talar auðvitað fyrir sinni neytendavernd, þannig að þarna takast á skemmtileg sjónarmið. En grunnatriðið í þessu máli varðandi vinnslu sjávarafla er auðvitað að skapa fyrirtækjunum sem eru í sjávarútvegi viðunandi skilyrði til að efla sína verðmætasköpun, efla sína vélvæðingu, nýsköpun og að geta unnið aflann hér heima á hagkvæmastan hátt þannig að það þurfi ekki að flytja hann út óunninn til landa sem geta boðið lægri laun, vegna þess að laun í íslenskum sjávarútvegi, fiskvinnslu, eru með því allra hæsta í heiminum. Við eigum að vera stolt af því og við eigum ekki að snúa til baka til einhvers konar ríkisvæðingar á þessu og skylda fólk til að gera þetta á óhagkvæman hátt, heldur að efla fyrirtækin og gera þeim kleift að vinna aflann hér heima á hagkvæman og árangursríkan hátt.