Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér fullvinnslu á afla innan lands og hugsanlega vinnsluskyldu. Ég tel það bara gífurlega mikilvægt fyrir þjóðarbúið að við gerum sem mest verðmæti úr þeim afla sem berst hér á land. Það skapar eins og við vitum miklar gjaldeyristekjur og fjölda starfa, ekki bara í vinnslunni sjálfri heldur líka afleidd störf og eykur byggðafestuna á landsbyggðunum. Við sem sjávarútvegsþjóð verðum að hafa metnað til að gera sem mest úr okkar auðlindum og hráefni innan lands og höfum vissulega verið að taka stór framfaraskref á liðnum árum í fullvinnslu sjávarafla með gæðaframleiðslu sem eftirsótt er á erlendum mörkuðum. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki, stór sem smá, eiga því heiður skilinn fyrir þann árangur sem náðst hefur í þessum efnum. Þar hafa mörg nýsköpunarfyrirtæki komið að og má þar nefna fyrirtæki eins og Kerecis á Ísafirði sem nýtir roðið til lækninga og hefur náð miklum árangri og útbreiðslu víða um lönd og ég þekki sjálf af eigin reynslu.
Það er auðvitað ekki ásættanlegt að útflutningur á óunnum fiski sé að aukast og fiskvinnsla fari í auknum mæli erlendis þar sem launin eru lægri en hér á landi. Ég segi nú bara að það er okkur til sóma að laun fiskvinnslufólks hafa hækkað í gegnum árin og mér hefur ofboðið þegar sumir framkvæmdastjórar fyrirtækja hér á landi eru að býsnast yfir því að það sé að sliga fyrirtækin. Mér finnst nauðsynlegt að það fari fram greining á því hve útflutningur á óunnum fiski er mikill og hvert hann fer og einnig hvernig sá útflutningur skiptist á milli útgerðarflokka. Það hefur orðið mikil tæknibylting í fiskvinnslu. Í mínum heimabæ, Suðureyri, er komin ný fullkomin fiskvinnslulína og þar starfa 40–50 manns. Ég tel mikilvægt að efla fiskmarkaði og að útgerðum sé skylt að bjóða aflann á fiskmörkuðum innan lands áður en þær flytja afla úr landi. Mér finnst alveg mega skoða útflutningsálag á gámafisk og leiðrétting á veiðigjöldum á ekki að verða þess valdandi að fiskvinnsla flytji úr landi. Það hlýtur að vera hagur allra að auka verðmæti hér innan lands.