156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.

[11:22]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Við getum verið afar stolt af íslenskum sjávarútvegi og má raunar segja að hann sé einstakur á heimsvísu. Greinin hefur auðvitað verið lykilþáttur í velmegun þjóðarinnar um árabil og framtíð hennar er björt ef við tryggjum rétt rekstrarumhverfi. Fyrirsjáanleiki í skattheimtu, álagningu gjalda og efnahagslegur stöðugleiki er lykilatriði og því mikilvægt að skapa aðstæður sem hvetja til meiri rannsókna og nýsköpunar. Einmitt þess vegna þarf að ræða hvernig hægt er að auka arðsemi og verðmætasköpun greinarinnar í dag. Það er alveg réttmætt að velta upp þeirri hugmynd hvort skylda eigi íslensk sjávarútvegsfyrirtæki til að fullvinna afla hér innan lands. Það er hugsanlega forsenda meiri verðmætasköpunar, þ.e. að fá meira út úr veiddum afla. Hugmyndin er því þess virði að skoða betur en það þarf að tryggja, áður en slík hugmynd er innleidd, að það liggi þá fyrir gögn og greiningar á áhrifum slíkrar vinnslu til að fullvinna afla hérlendis. Við viljum ekki skyndilega og óundirbúna hækkun álaga á atvinnugreinina eins og við stöndum frammi fyrir hér í dag miðað við frumvarp ríkisstjórnarinnar. Sjónarmiðin sem þarf að horfa til eru m.a. hvort verið sé að takmarka möguleika til hagræðingar eða frelsi til athafna. Þrátt fyrir að lög um stjórn fiskveiða heimili umrædda vinnsluskyldu afla þá þarf að vanda vel til verka. Atvinnugreinin þarfnast stöðugleika og traustra gagna um áhrif slíkra breytinga áður en þær eru innleiddar. Þessi umræða hér í dag er mikilvæg og hún getur verið jákvæð en það er líka mikilvægt að setja þetta allt saman í samhengi. Þá er ég að tala um þau mál sem ríkisstjórnin hefur verið að leggja hér fram og áhrifin af þeim málum á sjávarútveginn, þessa atvinnugrein, og einnig hvort það myndi liggja fyrir hvort við sjáum einhverja (Forseti hringir.) hvata til fyrirtækja þannig að þau sjái hag sinn í því að vinna aflann hér heima ef umrætt frumvarp verður að veruleika óbreytt.