156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.

[11:25]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Eydísi Ásbjörnsdóttur fyrir að taka málið til umræðu hér á Alþingi. Málið er þjóðinni afar mikilvægt og hefur oft og tíðum orðið til umræðu, m.a. á vettvangi verkalýðsfélaga á almennum vinnumarkaði. Það þarf ekki að fara langt aftur í tímann til að finna djúpar umræður um það hvaða skyldur eigi að hvíla á þeim fyrirtækjum sem sækja sjóinn og nýta auðlindir íslenskrar þjóðar. Auðlindir þjóðarinnar eru verðmætar og það fylgja því mikil forréttindi að fá aðgang að því að nýta þessar takmörkuðu auðlindir.

Hér í þessum sal hefur skipulag veiðanna æðioft komið til umræðu. Kvótakerfið var upphaflega sett á til að vernda fiskstofnana fyrir ofveiði, til að koma í veg fyrir að gengið væri of nærri hinum ýmsu fiskstofnum. Samfélagið krefst þess að við fáum eðlilega rentu af þessum verðmætum. Samfélagið á auk þess skilið að njóta þeirra starfa sem hljótast af sjávarútvegi. Ég tel afar mikilvægt að tryggt verði að við hámörkum þau verðmæti sem hafið gefur og að við gerum það innan lands. Ef það er rétt, sem haldið hefur verið fram af talsmönnum sjálfstæðra fiskvinnsla undanfarnar vikur, að hundruð nýrra starfa gætu orðið til ef við grípum til aðgerða til að koma í veg fyrir óheftan útflutning á óunnum fiski þá myndi það eflaust þýða auknar tekjur fyrir samfélagið og sveitarfélög víða um landið. Það er hins vegar álitamál hvað okkur er stætt á að ganga langt í því að takmarka útflutning á óunnum fiski út frá sjónarmiðum um viðskiptafrelsi og skuldbindingar okkar samkvæmt EES-samningnum. Ég tel þó vert að kanna hvað er hægt að gera í þessum efnum og að við nýtum þær heimildir sem eru til staðar til hagsbóta fyrir samfélagið og ég fagna því að heyra að ráðherra ætli að taka þessi mál til skoðunar.