Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka málshefjandi þingmanni fyrir þessa frábæru fyrirspurn og þakka öllum fyrir upplýsandi umræður. Hér hefur talsvert verið talað um að virðisaukinn í sjávarútvegi verði að verulegu leyti til í vinnslunni og ég ætla aðeins að bæta um betur vegna þess að á síðustu árum hefur átt sér stað algjör bylting í fullnýtingu sjávarafurða, m.a. fyrir tilstuðlan Sjávarklasans þar sem ekki er einungis verið að nýta flökin heldur líka roð og hrogn og skinn og bein o.s.frv. til að búa til gríðarlega verðmætar afurðir eins og kollagen og sáraumbúðir. Reyndar er það þannig að Sjávarklasinn áætlar að innan 7–8 ára geti virðið af þessum afurðum verið meira heldur en af flökunum. Markmiðið um að nýta aflann meira hér á Íslandi er virkilega gott en þá er spurning: Hvernig náum við því fram? Ég ætla að leyfa mér að vera sammála hv. þm. Jens Garðari Helgasyni um að boð og bönn og höft hafa ekki reynst okkur neitt sérstaklega vel. Ég ætla líka að fá að vera sammála hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni um að þetta snúist um að skapa sem bestar rekstraraðstæður fyrir fyrirtækin. Eitt af því sem við getum gert þar af leiðandi er að bæta markaðsaðganginn fyrir íslenskar sjávarafurðir í útlöndum vegna þess að það er þannig að þrátt fyrir að við höfum gríðarlega hagstæðan aðgang að okkar langstærsta og mikilvægasta markaði, sem er Evrópusambandið, þá er það samt svo að það eru mikið hærri tollar á fullunna vöru heldur en á hrávöruna. Þannig er það t.d. að tollar á þorskflök eru 25% hærri heldur en tollar á óunninn fisk. Þannig að full aðild að Evrópusambandinu myndi veita íslenskum sjávarafurðum, þar með talið fullunnum sjávarafurðum, varanlegan, ótakmarkaðan, tollfrjálsan aðgang að innri markaði Evrópusambandsins. Þess vegna segi ég það að ef við viljum bæta rekstraraðstæður vinnslunnar þá er sóknarfæri í því að ganga sem fyrst í Evrópusambandið.