156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.

[11:29]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það var vissulega fróðlegt að heyra þetta frá hv. þingmanni Samfylkingar, nei, Viðreisnar — sennilega er nú sama tóbakið í sitthvorri dósinni. Hann ætti að ræða þetta við sjómenn í Bretlandi sem eru nýbúnir að þurfa að takast á við það að Evrópusambandið ætlar enn þá að halda krumlunni á einmitt nýtingu auðlindarinnar. Þetta er það sem mun koma í veg fyrir það að við göngum nokkurn tímann í Evrópusambandið, af því að fiskveiðilöggjöf þess getur aldrei stutt við þetta.

Það er aukning í útflutningi á gámafiski. Það er slæmt. Það skapar minni verðmæti úr auðlindinni. Það er samkeppni við ódýrara vinnuafl, niðurgreiddar vinnslur, styrki innan Evrópusambandsins sem við erum að keppa við. Það er í sjálfu sér leitt og slæmt að sjálfstætt starfandi vinnslum sem eru án útgerðar skuli hafa fækkað og það þarf að leita leiða til að þær geti fengið hráefni til vinnslu. Þær skapa fjölbreytni, þær fara inn á smærri og dýrari markaði. Það var mikil gróska í þessu fyrir Covid en hefur því miður dregist allt of mikið saman. Þetta er ekki vandamál sem er að vakna núna en vandamálið er vaxandi út af þessari samkeppni við niðurgreiddar vinnslur í Evrópusambandinu fyrst og fremst.

Við höfum byggt hér upp verðmyndun á markaði, innri markaði okkar, sem styður við þessa öflugu vinnslu sem við höfum, þessa miklu verðmætasköpun sem við höfum, miklu meiri en aðrar þjóðir. Við erum með um 12% af þorskinum sem fer út hér, 60% í Noregi, ýsunni 27% en tæp 100% í Noregi fara til vinnslu erlendis. Maður hefur miklar áhyggjur af því að þau skref sem núna eru boðuð í fiskveiðistjórnarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar ýti enn frekar undir þetta vegna þess að þar er höggið að grundvelli samþættingar veiða og vinnslu á Íslandi og það er mikil hætta á því að við munum sjá enn frekari aukningu verði þessi lög að veruleika.