Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.
Frú forseti. Útflutningur á heilum ferskum fiski hefur verið til umræðu um árabil þar sem vegast á sjónarmið um hagsmuni innlendrar fiskvinnslu annars vegar og hæsta mögulega verð fyrir aflann hins vegar. Samkeppni íslenskrar fiskvinnslu er þarna lykilatriði, frú forseti. Útflutningsleiðir eru nokkrar; beinar sölur inn á erlenda markaði, miðlun í gegnum íslenska fiskmarkaði og sala á uppboði. Útflutningur í gámum hefur aukist, sérstaklega í gegnum íslenska fiskmarkaði, en gámafiskur er sá afli sem fluttur er út óunninn í gámum, annaðhvort beint frá útgerð eða í gegnum fiskmarkaðina. Í gegnum árin hafa verið lagðar mismunandi útflutningsálögur á óunninn fisk en þær hafa nú verið leystar af hólmi með reglum um fasta ísprósentu og skyldur til vigtunar á Íslandi.
Frú forseti. Þróunin sýnir að útflutningurinn hefur ekki sveiflast í samræmi við breytingar á regluverki heldur einkum vegna verðmyndunar og eftirspurnar á erlendum mörkuðum. Nú er það svo að ef ríkisstjórnin hyggst setja svo miklar álögur á sjávarútveginn að það verði orðið þungt að vinna aflann hér á landi þá blasir við sú hætta að í stað þess að horfa á undirliggjandi vandamál, þ.e. gjaldtökuna, verði reynt að skikka útgerðir til að vinna aflann innan lands með óhagkvæmum hætti. Slík nálgun grefur undan eðlilegum viðskiptum og getur grafið undan verðmætasköpun í greininni.