156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.

[11:33]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Flf):

Hæstv. forseti. Það er ekki margt sem er hægt að gera í þessu annað en að tryggja fiskvinnslum án útgerðar sem treysta sér til að vinna ekki bara þessi 50.000 tonn sem er í dag verið að flytja óunnin úr landi — og ef útgerðin ætlar að fara að auka útflutning á gámafisk þá er það eina sem stjórnvöld eiga að gera er að setja lög um það að allur fiskur sem veiddur er í fiskveiðilandhelgi Íslands verði seldur á fiskmörkuðum á Íslandi. Það tryggir aðgang fyrir fiskvinnslur án útgerðar þannig að þær hafi aðgang að hráefni sem þær vantar í rauninni allt árið. Fyrir tíu árum síðan voru yfir 100 fyrirtæki, fiskvinnslur án útgerðar starfandi í landinu. Þeim hefur fækkað verulega vegna þess að meira að segja stóru íslensku fyrirtækin sem eru handhafar veiðiheimilda á Íslandi eru að selja og eru stærstu útflytjendur á ferskum fiski. Það er hægt að gjörbreyta þessu með því einfaldlega að skikka handhafa veiðiheimilda á Íslandi til að setja fiskinn sinn inn á fiskmarkað á Íslandi og selja hann þar. Þá komum við í veg fyrir þessi mistök sem hugsanlega er verið að hóta að gera núna.