Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra, Hönnu Katrínu Friðriksson, fyrir góð svör og gott samtal og einnig þeim hv. þingmönnum sem tóku til máls í umræðunni í dag. Þetta hefur verið góð og þörf umræða um málefni sem hefur aðeins verið í deiglunni undanfarið þó svo að við séum ekki öll sammála um hvaða leiðir eigi að fara. Ég vil taka það fram að það er enginn að leggja til að veiðar og vinnsla verði áfram á sömu hendi og átta mig því ekki alveg á máli hv. þm. Jóns Gunnarssonar og hv. þm. Jens Garðars Helgasonar sem töluðu í máli sínu um norsku leiðina. En ég fagna því að hæstv. atvinnuvegaráðherra sjái fyrir sér að ráðist verði í vinnu við nýtt stöðumat, hvort sem litið er til mögulegrar vinnsluskyldu eða einhvers konar álags á útflutning. Slíkt stöðumat þarf að vera vandað og byggt á gögnum og reynslu. Mikilvægt er að gott samtal sé við hagaðila og ég vona að allir séu til í það samtal sem ég veit að hæstv. atvinnuvegaráðherra leggur áherslu á í sínum störfum.
Virðulegi forseti. Við sem sitjum hér berum þá ábyrgð að tryggja að sjávarútvegurinn skili sem mestum verðmætum inn í íslenskt samfélag. Skylda okkar er að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hámarka arðsemi greinarinnar innan lands. Það er ljóst að þessi umræða hefur opnað á fleiri spurningar sem vert er að skoða nánar og það tel ég mjög jákvætt. Ég hlakka til áframhaldandi vinnu og vona að hún verði markviss, opin og lausnamiðuð. Ég þakka á ný öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum í umræðunni.