156. löggjafarþing — 48. fundur,  22. maí 2025.

Innlend vinnsluskylda á sjávarafla.

[11:40]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég vil taka í sama streng til að byrja með og hv. þm. Eydís Ásbjörnsdóttir, sem er málshefjandi hér, og þakka fyrir góða og málefnalega umræðu og þakka fyrir að þetta mál sé tekið á dagskrá. Umræðan hér í þingsal endurspeglaði eiginlega umræðuna annars staðar þar sem þetta er mjög mikið áhyggjuefni margra. Menn greinir á um hvort eigi að grípa til einhverra sértækra aðgerða og þá hvaða eða hvort þetta sé óhjákvæmilegt og, eins og ég kom inn á í ræðu minni, mikilvægt tæki fyrir fyrirtæki í rekstri til sveiflujöfnunar. Ég átta mig ekki hins vegar á því hvernig hægt er að fara, eins og einstaka stjórnarandstöðuþingmenn hafa gert hér, lóðbeint úr því að taka hér málefnalega umræðu um mikilvægt mál sem eru skiptar skoðanir á og fara að tala um einhverja sérstaka vegferð ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin er einfaldlega ekki á neinni vegferð hér annarri en þeirri að halda áfram á þeirri braut að skapa rekstrarumhverfi fyrir sjávarútveginn þannig að hann nái að blómstra. Hv. þm. Jens Garðar Helgason fer hér yfir í norsku leiðina og þar gætir ákveðins misskilnings. Starfsumhverfið á Íslandi er gjörólíkt því sem er í norskum sjávarútvegi, t.d. er hér heimilt að samþætta veiðar og vinnslu en í Noregi er aðskilnaðurinn meginregla. Þar liggur ekki síst munur þegar kemur að akkúrat þessu máli og það er enginn áhugi á því að breyta þeim skilyrðum hér. Það er líka áhugavert að vitna til þess, finnst mér, að á aðalfundi SFS, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sem var haldinn í byrjun apríl, kom skýrt fram að verðmætaaukningin er ekki síst í fullvinnslu afurða og tekið skýrt fram að þar lægi hún í náinni framtíð. Það er staðreyndin þannig að þetta er ofboðslega mikilvægt. Við þurfum að halda áfram á þeirri braut að búa svo um hnútana að hér sé hvati til að vera með sem mest af fisknum fullunnum hér á landi. Ég mun fara í greiningar á þessu máli, skoða það, vegna þess að ég veit að það er það sem þingheimur m.a. hefur áhuga á. (Forseti hringir.) En að öðru leyti þá þakka ég bara fyrir þessa umræðu.