156. löggjafarþing — 49. fundur,  26. maí 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:02]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Borist hafa bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 440, um skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga, og á þskj. 441, um milliúttektir og endurskoðun á ferli jafnlaunavottunar, báðar frá Diljá Mist Einarsdóttur, og á þskj. 423, um úttekt á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, frá Bryndísi Haraldsdóttur.

Einnig hefur borist bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 484, um útgjöld til loftslagsmála, frá Karli Gauta Hjaltasyni.